spot_img
HomeFréttirSemur í Sýrlandi

Semur í Sýrlandi

Hinn hálf íslenski Andrée Fares Michelson hefur á nýjan leik samið við Al Ittihad fyrir komandi tímabil í Sýrlandi. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum.

Anrée er 27 ára og er hálf íslenskur og hálf sænskur. Hann ólst upp í akademíu Malbas í Malmö, en síðan hann hóf að leika með meistaraflokk hefur hann leikið fyrir félög í Svíþjóð, Íslandi, Þýskalandi og á Ítalíu.

Al Ittihad er staðsett í Aleppo og leika þeir í efstu deild sýrlensku deildakeppninnar. Þeir hafa margoft unnið sýrlenska titilinn, nú síðast á þessu tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -