Semur í Smáranum

Breiðablik hefur samið við argentínska kraftframherjann Ivan Catani um að leika með meistaraflokki karla á komandi keppnistímabili.

Catani, sem er 198 cm á hæð og með ítalskt vegabréf, er líkamlega sterkur leikmaður með góða skotgetu fyrir utan og er þekktur fyrir grimman og harðskeyttan varnarleik. Hann hefur leikið í heimalandinu og víðsvegar um Evrópu síðustu ár, en kemur til Kópavogsliðsins frá Paragvæ þar sem hann skoraði um 18 stig að meðaltali í efstu deild.

Hrafn Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, segir komu Catani mikilvægan lið í að styrkja hraðan leikstíl og varnarleik liðsins í vetur, sérstaklega eftir að ljóst var að Dino Stipcic yrði ekki áfram:

„Við vildum ekki eltast við þá þróun að taka inn stóra miðherja heldur leikmann sem myndi efla hraðan leikstíl okkar og þann grimma varnarleik sem við viljum tefla fram í vetur. Við teljum Ivan henta vel í það hlutverk auk þess sem hann er þekktur fyrir leiðtogahæfileika og sterka rödd í búningsklefanum.“

Catani segist sjálfur hafa lengi viljað spila á Íslandi:

„Möguleikinn að spila á Íslandi hefur áður komið upp án þess að það gengi upp þannig að þetta er eitthvað sem mér fannst ég þyrfti að klára af listanum! Ég hef fylgst vel með undirbúningi strákanna og er tilbúinn að ganga til liðs við liðið og berjast með þeim í vetur!“

Fréttir
- Auglýsing -