Stólarnir tóku fyrsta leik úrslita seríunar á Króknum í dag í ótrúlegum leik, 93-90.
Stólarnir því komnir með 1-0 forystu í einvíginu, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Gangur leiks
Það var troðfullt í síkinu í dag og stefndi allt í frábæran leik á Króknum, Stólarnir komu sterkari inn í leikinn og Sadio Doucure byrjaði á þristi fyrir heimamenn. Stólarnir fóru á 12 – 3 run í byrjun áður en Stjörnumenn fóru í gang, stólar voru mest að vinna með 9 stigum á þessum tímapunkti, Stjarnan hafði vel getað brotnað við þetta fræga Stóla run en það gerðu þeir ekki. Þeir héldu haus og komust smátt og smátt aftur í leikinn. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 26 – 22.
Seinni leikhluti var hörku jafn og þetta var einmitt það sem við áhorfendur vildum sjá. Stjarnan voru betri í þessum leikhluta og voru að spila mjög grimmt og voru að hraða leiknum mjög mikið. Þessi bolti gerði leikinn mun skemmtilegri og stemmingin var rosaleg. Hjá Stjörnunni var það að sjálfsögðu Ægir þór og Hilmar Smári sem voru að leiða vagninn með fínu framlagi frá fleirum. Hjá Stólunum var það líka bakvarða sveitinn sem var að leiða sitt lið, Basile gerði vel að stoppa Stólana að fara alltaf aftur í hnoð boltan sinn með Grísku bræðrunum og braut leikinn upp. Staðinn í hálfleik var 43 – 42 fyrir Stólunum.
Í þriðja leikhluta héldu Stjarnan áfram að brillera, vörninn var frábær og hún var mjög aggressive, Stólarnir brotna pínu við hann og sóknaleikurinn staðnar. Þeir fóru að leita mikið á Póstinn og það er hægt að seigja að þetta hafi verið mikið hnoð þá m.a frá grísku bræðrunum. Staðan í lok þriðja leikhluta var 69 – 74
Fjórði leikhluti var rosalegur, Stólarnir voru í miklu brasi til að byrja með, þá þegar þeir voru með frekar stórt lið inn á, það er nokkuð augljóst að Adomas Drungilas gangi ekki heill til skógar því hann hefði átt að spila miklu Meira en Grísku bræðunnir sem voru mjög slakir allan leikinn. Shaquille Rombley fékk 5 villuna þegar það var lítið eftir, það er hægt að segja að það hafi verið mjög ,,soft” villa meðan við aðra dóma í leiknum.
Lokamínúturnar voru magnaðar, Stjarnan komast yfir með 5 og þá heldur maður pínu að þeir hafi klárað leikinn þá en svo var svo sannarlega ekki. Basile fer í pick and roll og kemst í auðvelt layup, og minkar muninn í 2 stig, eftir það fær Orri fínan séns á körfuna, hann reyndi að troða yfir Sadio en það klikkar hjá honum, Stólar fara í hraðarupphlaup sem endar með að Sadio missir boltan í hornið á gal opin Davis Geeks sem setur þrist og síkið tryllist. Baldur tekur leikhlé sem er teiknað upp fyrir Ægir, sem kemst í fínt færi nálægt körfunni en klikkar, úr sjónvarpinu leit það út fyrir að vera villa en það var ekkert dæmt. Stjarnan brýtur á endanum á Giannis sem fer á línuna og setur bæði víti og kemur Stólunum yfir með 3 stigum.
Stjarnan tekur innkast á Ægir sem hleypur upp völlinn og ætlar að kasta boltanum upp en Basile tekur glórulausa ákvörðun og reynir að blokka hann og nær eithvað af boltanum og boltinn fer útaf og leikurinn búinn, að mínu mati tekur hann mikið af hendinni á Ægi í leiðinni en dómarinn dæmir ekki á það. Loka tölur 93 – 90, magnaður leikur í Síkinu.
Atkvæðamestir
Hjá Stólunum voru Basile og Sigtryggur Arnar bestir, Basile var með 25 stig, 9 fráköst og 28 framlagstig. Eins og ég tók fram fyrir ofan gerði hann vel í að koma sóknarleiknum í gang hjá Stólunum, á tímapunkti fóru þeir í hundleiðinlegan lurabolta og mikið hnoð undir körfunni en þeir fundu síðan útur því. Sigtryggur var með 19 stig og að sjálfsögðu með flott orkustig sem gerði mikið fyrir Stólana.
Hjá gestunum var Hilmar smári frábær með 28 stig og 9 fráköst. Ægir Þór var hins vegar stórkostlegur í dag með nánast þrennu, eða 24 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar. Shaquile Rombley var einnig fínn í dag og hann er gífurlega mikilvægur í þessu liði og það var mjög dýrt að missa hann útaf með 5 villur.
Kjarninn
Heilt yfir fannst mér Stjarnan spila mun betri körfubolta í dag, varnarleikur var mjög góður nánast allan leikinn eða þangað til að Shaq fór útaf, bara það að hafa hann inn í teignum hræðir andstæðinginn alltaf mikið bara við það að fara inn í teig. Svo eru Stólarnir auðvitað mjög stórir og þess vegna mikilvægt að hafa hann. Ástæðan fyrir því að Stólarnir unnu í dag var að mínu mati bara þessi klassíska Stóla geðveiki sem fór í gang þarna í lokinn. En meðan við hvernig umtalið var fyrir leikinn um að Stólarnir væru miklu betri gefir þessi hörku leikur góða fyrir stöðu fyrir seríuna.
Hvað svo?
Leikur 2 er á Sunnudaginn í Garðarbænum og verður það án efa hörkuleikur, Stólarnir eiga mikið inni fyrir seríuna en Stjarnan sýndi að þeir eiga klárlega heima á þessu sviði.
Myndasafn (væntanlegt)