spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún og Phoenix lögðu Cluj Napoca í spennuleik í Transilvaníu

Sara Rún og Phoenix lögðu Cluj Napoca í spennuleik í Transilvaníu

Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta lögðu Cluj-Napoca fyrr í dag í rúmensku úrvalsdeildinni, 56-59.

Eftir leikinn er Phoenix í 5. sæti deildarinnar með 19 stig, 6 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 33 mínútum spiluðum skilaði Sara Rún 7 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Söru og Phoenix í deildinni er komandi laugardag 15. janúar gegn Bucuresti.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -