spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSara Rún og Faenza lágu gegn Brixia

Sara Rún og Faenza lágu gegn Brixia

Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza máttu þola tap í kvöld fyrir Brixia í ítölsku úrvalsdeildinni, 57-49.

Eftir leikinn er Faenza í 10. sæti deildarinnar með fimm sigra og ellefu töp það sem af er tímabili.

Á 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún tveimur stigum, þremur fráköstum og tveimur stoðsendingum.

Næsti leikur Söru og Faenza er þann 21. janúar gegn Valdarno.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -