Sara Rún Hinriksdóttir og Faenza máttu þola 13 stiga tap fyrir Sassari í kvöld í ítölsku úrvalsdeildinni, 70-83.
Faenza er eftir leikinn í 10. sæti deildarinnar með 6 sigra og 14 töp það sem af er tímabili.
Á 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sara Rún 12 stigum, 4 fráköstum og stolnum bolta.
Næsti leikur Söru og Faenza er þann 26. febrúar gegn Bologna.