HomeFréttirSambandið skilar miljóna afgangi

Sambandið skilar miljóna afgangi

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur birt ársreikning sinn fyrir liðið ár og sent hann til aðildarfélaga sinna. Niðurstöðurnar sýna afar traustan og góðan rekstur á vegum sambandsins.

Heildartekjur ársins námu rúmum 392 milljónum króna á meðan gjöldin voru í kringum 380 milljónir króna. Reksturinn skilaði því afgangi upp á um 12 milljónir króna.

Þessi góða afkoma hefur skilað sér í mikilli bót á efnahagsreikningi sambandsins. Neikvætt eigið fé hefur verið snarskorðið niður og er nú komið undir 5 milljónir króna, sem er virkilega jákvæð breyting.

Ársreikninginn í heild sinni má nálgast í viðhengi hér

Fréttir
- Auglýsing -