ÍR lagaði Stjörnuna 100-81 í Iceland Express deild karla í kvöld. Heimamenn í Seljaskóla fóru á kostum í fjórða leikhluta og skoruðu 39 stig á gesti sína. Mikilvægur sigur í Breiðholti og liðið nú í 6. sæti deildarinnar. Gísli Ólafsson ræddi við Sveinbjörn Claessen, ÍR, og Teit Örlygsson, Stjörnunni, eftir leik.
Sveinbjörn Claessen, leikmaður ÍR
,,Þetta er orðið vígi, það er ákveðin hugarfarsbreyting sem hefur orðið hjá okkur og það er að skila sér í þessum leikjum, fyrir utan smá hikst í leikjunum gegn Snæfell og Tindastól þá held ég að hlutirnir séu bara á góðu róli hjá okkur,“ sagði Sveinbjörn í leikslok en hann gerði 12 stig, tók 3 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í leiknum.
Hvað kveikti í ykkur í fjórða leikhluta?
,,Við vorum búnir að vera hægir allan leikinn og nokkuð heilalausir og svo tókst okkur að setja í næsta gír, gírinn sem við áttum að vera í frá byrjun, ég lít frekar á þetta þannig að það hafi verið lélegt af okkur að spila ekki svona allan leikinn því þetta er sú keyrsla sem við eigum að vera á allan tímann,“ sagði Sveinbjörn, undirritaður lét krók mæta bragði og spurði hvort þetta væri það sem skyldi þá koma hjá ÍR-liðinu í næstu leikjum?
,,Að sjálfsögðu, það hefur verið stígandi hjá okkur í allan vetur og þetta er það sem koma skal, hiklaust.“
_______________________________________________________________________________
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar
,,Mér fannst einbeitingarleysi vera í varnarleiknum okkar, ÍR fékk fullt af fríum skotum og þeir bara settu þau, eins og öll lið gera á heimavelli. Þetta voru vonbrigði því við höfum verið að spila góða vörn undanfarið en gáfum eftir í þessum leik á móti fínu ÍR-liði og þá er ekki að sökum að spyrja og ÍR vann verðskuldaðan sigur,“ sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar aðspurður um lokasprettinn gegn ÍR í kvöld en ÍR lagði Stjörnuna 100-81 og unnu lokaleikhlutann 39-25.
Er þetta áhyggjuefni fyrir Stjörnuna, svona seint á leiktíðinni, að missa svona dampinn í fjórða leikhluta?
,,Auðvitað viljum við að menn stígi upp í fjórða leikhluta en ekki öfugt, ég hef samt engar áhyggjur þannig lagað enda þekki ég mína stráka og veit að þeir eru svekktastir með sjálfa sig í kvöld. Við mætum bara í næsta leik og gerum betur enda þýðir ekkert að dvelja við þetta, það eru þrír leikir eftir og við stefnum að því að ná þessu fimmta sæti.“
Texti og mynd: Gísli Ólafsson





