HomeFréttirSagt eftir leik í Hólminum: Úrslitakeppnin er einfaldlega hafin

Sagt eftir leik í Hólminum: Úrslitakeppnin er einfaldlega hafin

 
Símon B. Hjaltalín ræddi við Pétur Ingvarsson þjálfara Hauka og Jón Ólaf Jónsson leikmann Snæfells eftir fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Snæfell vann leikinn og leiðir því einvígið 1-0.
Pétur Ingvarsson þjálfari Hauka.
 
Varstu búinn að mótivera þinn hóp sérstaklega fyrir leikinn sem gerði það að verkum að þeir koma með látum í upphafi leiks?
 
"Ég var svo sem ekkert búinn að peppa mannskapinn upp sem slíkt en við vorum búnir að vinna í ákveðnum hlutum til finna leiðir til að vinna Snæfell. Ég er viss um að ef við hefðum verið heppnari í einhverjum skotum þá er ég viss um að við hefðum unnið besta liðið á landinu á þeirra heimavelli. Þeir breyttu um vörn í síðari hluta fyrri hálfleiks sem tók okkur úr okkar leik og svo lentum í tölverðum vandræðum í seinni hálfleik sem við förum nú yfir og finnum leiðir til að brjóta það á bak aftur."
 
Er mest breiddin sem er munurinn þegar það verður viðsnúningur í leiknum og Snæfell fer að komast betur inn í leikinn?
 
"Í Snæfellsliðinu eru flestir búnir að spila fleiri leiki og mínútur en mínir menn þannig að þetta kemur bara í rólegheitunum hjá okkur. Við erum að spila hér gegn besta liðinu í deildinni síðasta árs. Breiddin já, við þurfum að hitta úr vítum og flestum skotum undir körfunni og ef við hefðum gert það þá hefði þetta verið leikur undir lokin."
 
Þið eruð að taka 21 sóknarfrákast gegn 6 hjá Snæfelli og eruð harðari undir körfunni er það eitthvað til að byggja á?
 
"Snæfell er að skora 76 stig í þessum leik en voru komnir með 76 stig í hálfleik í síðasta leik sem við spiluðum við þá þannig að við erum að taka þá út úr sínum leik sem er hraður, hægja á þeim og þar liggja okkar möguleikar. Það er alveg klárt að það þarf að vinna tvo leiki og ekkert breyst frá því morgun að það þarf að vinna leiki. Við þurfum að koma hingað einhverntímann að vinna hvort sem það væri í dag eða í oddaleik. Ég á ekki von á öðru en þeir komi tilbúnir í næsta leik annars eru þeir ekki handhafar allra bikara í landinu en við verðum tilbúnir líka"
 
Jón Ólafur Jónsson (Nonni Mæju) Snæfelli.
 
Hvað var að gerast í upphafi leiks þar sem þið vorum á eftir Haukum í öllum aðgerðum, og þið eigið væntanlega von á þeim í slíkum ham í Hafnarfirði?
 
"Það er spurningin sem brennur á vörum margra. Það var bara vanmat í gangi og við vorum bara ekki tilbúnir í neinum aðgerðum okkar í kvöld. Þeir koma ábyggilega miklu brjálaðri en þetta í næsta leik en mér fannst þeir ekkert rosalega brjálaðir í kvöld við vorum bar hrikalega lúnir og andlausir á því. Þeir voru að berjast og taka fráköstin í fyrri hálfleik en við vorum bara slappir. Ég veit ekki hvort þetta er umræðan um að við erum í fyrsta sæti en þeir í áttunda og neikvæðni í þeirra garð gagnvart okkur og að við gætum slakað á í þessari seríu"
 
Þið komið væntanlega meira tilbúnir í Hafnarfjörðinn með kröfu um sigur?
 
"Já við getum ekki boðið okkur sjálfum og stuðningsmönnum okkar uppá þetta virðingaleysi eins og við sýndum hérna í kvöld að mæta aftur svona til leiks og átta okkur á því að úrslitakeppnin er einfaldlega byrjuð ef við ætlum að vera með"
 
Af meiðslum Burton:
Meiðsli Sean Burton eru ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið og að sögn Inga Þórs þjálfara Hólmara verður hann með í leik tvö gegn Haukum að Ásvöllum á mánudaginn, en hann snéri sig illa á ökkla á síðustu sekúndum fyrsta leikhluta.
 
Símon B. Hjaltalín

Myndir/ Á efri myndinni er Pétur Ingvarsson en Þorsteinn Eyþórsson tók þá neðri í kvöld þar sem Sean Burton var borinn af leikvelli í Hólminum, meiddur á fæti og lék ekki meira í leiknum.

Fréttir
- Auglýsing -