spot_img
HomeFréttirSaga körfuknattleiksdeildar Ármanns komin út - „Frá stofnun til stórra titla“

Saga körfuknattleiksdeildar Ármanns komin út – „Frá stofnun til stórra titla“

Það er nokkuð ljóst að körfuboltaáhugamenn ættu ekki að vera í miklum vandræðum með að óska sér bóka í jólagjöf enda spennandi bækur sem koma út fyrir jólin. Sem dæmi má nefna bók Kjartans Atla „Hrein karfa“ sem kom út á dögunum.

Körfuknattleiksdeild Ármanns sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem kynnt er ný bók er kynnt. Þar sem farið er yfir sögu körfuboltadeildar Ármanns, þá sérstaklea árin 1952 til 1976 þegar Íslandsmeistaratitill félagsins vannst.

Mynd þegar fyrstu eintökin voru afhent
Frá vinstri, Karl H. Guðlaugsson formaður KKD Ármanns, Sigurjón Svavar Yngason höfundur bókarinnar, Sigurður Ingólfsson sem var í ritstjórn bókarinnar og Snorri Þorvaldsson sem sat í ritstjórn bókarinnar.

Tilkynning Ármanns má sjá í heild sinni hér að neðan:

Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur gefið út bókina “Frá stofnun til stórra titla” sem er tímamótarit fyrir alla körfuboltaáhugamenn landsins. Bókin inniheldur sögu körfuknattleiksdeildar Ármanns allt frá fyrstu skrefum körfuboltans á Íslandi árið 1952 allt til fyrsta og eina Íslandsmeistaratitils félagsins árið 1976. Segja má að saga Ármanns á þessum samtvinnist sögau körfuboltans frá stofnun enda Ármann sigursælt lið á þessum tíma. Í bókinni má finna lýsingar leikja, frásagnir liðsfélaga, myndir og endurminningar frá þessum árum. 

Höfundur bókarinnar er Sigurjón Svavar Yngvason sem lék í fjölmörg ár með liði Ármanns, auk þess að gegna stöðu liðstjóra og þjálfara liðsins. Hann sat einnig í ritstjórn bókarinnar sem segja má að sé þungavigtar. Ásamt Sigurjóni sitja í ritstjórn þeir: Sigurður Ingólfsson sem varð Íslandsmeistari 1976, landsliðsmaður. og síðar formaður KKÍ og Snorri Þorvaldsson sem tók þátt í uppvaxtar árum liðsins auk þess að gegna stöðu formanns Ármanns í heil 16 ár.

Í bókinni má finna merkilegar frásagnir og myndir af leikjum og uppgöngu körfuboltans. Til að mynda er farið yfir slagsmál Curtis Carter og Jimmy Rogers frá árinu 1975, aðstöðuna, eftirminnilega liðsfélaga og góða sigra. Í lok bókar er farið yfir sögu körfuknattleiksdeildarinnar á síðustu árum á hundavaði. Mikill uppgangur er í körfuknattleiksdeild Ármanns þessa dagana, iðkenndur orðnir fjölmargir og meistaraflokkarnir blómstrandi. Það er því frábært að geta gefið út þessa bók sem geymir merka sögu félagsins í þessum uppvaxtartímum til að efla enn félagsmenn að byggja áfram á þeim grunni sem segir frá í bókinni. 

Bókin er nú þegar komin út og er seld í Ármannsheimilinu á Engjavegi 7 en einnig má hafa samband við Jón Þór framkvæmdarstjóra Ármanns ([email protected]), Eið Ottó ([email protected]) íþróttafulltrúa Ármanns eða Karl H. Guðlaugsson formann kkd. Ármanns ([email protected]). Algjör skyldueign og frábær jólagjafahugmynd fyrir alla Ármenninga sem og körfuboltaáhugafólk á öllu landinu.

Fréttir
- Auglýsing -