HomeFréttirSafnað fyrir Sif

Safnað fyrir Sif

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir hina 45 ára gömlu Sif Rós Ragnarsdóttir, sem greindist með hinn alvarlega MND-sjúkdóm um síðustu áramót.

Söfnuninni er ætlað að létta undir með Sif og eiginmanni hennar, Jóhanni Þór Ólafssyni þjálfara Íslandsmeistara Grindavíkur, vegna þeirra nýju áskorana og þess breytta veruleika sem blasir við fjölskyldunni. Safnað er fyrir ýmsum nauðsynlegum tækjakaupum sem fram undan eru, auk þess sem framtakið á að sýna hjónunum fram á ríkan stuðning samfélagsins í þessu krefjandi verkefni.

Nánustu aðstandendur hjónanna hvetja fólk til að sýna samstöðu og leggja málefninu lið svo þau þurfi ekki að standa ein í baráttunni.

Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á bankareikninginn 0370-13-061100, kennitala 110481-5199.

Fréttir
- Auglýsing -