HomeFréttirSafnað fyrir dóttir goðsagnar

Safnað fyrir dóttir goðsagnar

Í byrjun júní fer af stað verkefnið „Styrktarlottó fyrir Kolfinnu Rán“, en hún hefur frá unga aldri tekist á við erfið verkefni í lífinu og barist af miklum krafti.

Kolfinna Rán á ekki langt að sækja körfuknattleiks- og íþróttahæfileika sína, en hún er dóttir íslensku körfuboltagoðsagnarinnar Olgu Færseth, sem á að baki glæsilegan feril þar sem hún var á sínum tíma meðal annars valin leikmaður ársins (1994), tvisvar í úrvalslið deildarinnar og varð fjórfaldur Íslandsmeistari ásamt því að vinna bikarmeistaratitilinn tvisvar. Fjöldi fyrirtækja á Akureyri, Reykjavík, Húsavík og í Vestmannaeyjum hefur þegar lagt söfnuninni lið með því að gefa vinninga, og rennur allur ágóði óskiptur í framtíðarsjóð Kolfinnu Ránar til að styðja við bakið á henni í hennar áframhaldandi baráttu.

Sýnt hefur verið fram á gríðarlegan samhug og samstöðu innan íþróttahreyfingarinnar, þar sem mörg lið og þekkt íþróttafólk hafa lagt sitt af mörkum með því að gefa áritaðar og sérmerktar treyjur merktar „Áfram Kolfinna“. Á meðal þeirra sem gefa treyjur eru fjölmörg íslensk félagslið eins og KR, Keflavík, Grindavík, ÍBV og Völsungur, auk íslensku og írska landsliðanna, og einstaklinga á borð við Martin Hermannsson, Söru Björk og Glódísi Perlu. Leitað er til einstaklinga, fyrirtækja og íþróttafólks sem vilja leggja þessu flotta málefni lið, hvort sem það er með því að gefa vinninga eða með því að deila upplýsingunum um lottóið svo sem flestir geti lagt sitt af mörkum.

Fyrirtæki, íþróttafólk eða einstaklingar sem vilja gefa vinninga í lottóið geta haft samband í síma 898-5903 eða í gegnum netfangið [email protected] í síðasta lagi til 1. júní. Eins eru allir hvattir til að deila upplýsingunum áfram til að tryggja sem mesta útbreiðslu og stuðning fyrir Kolfinnu Rán.

Fréttir
- Auglýsing -