Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst þann 4. október næstkomandi með viðureign Boras Basket og 08 Stockholm. Íslendingaliðin Sundsvall og Norrköping eiga leiki 5. og 6. október.
Þeir Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson byrja á heimavelli með Sundsvall Dragons þann 5. október þegar Uppsala Basket kemur í heimsókn og Pavel Ermolinski hefur leik með Norrköping Dolphins þann 6. október á útivelli þegar liðið mætir Södertalje Kings.
Fyrsta umferðin í sænsku:
4. okt: Boras – 08 Stockholm
5. okt: LF Basket – Solna Vikings
5. okt: Sundsvall Dragons – Uppsala
5. okt: Stockholm Eagles – ecoÖrebro
5. okt: Jamtland-Nassjö
6. okt: Södertalje-Norrköping
Nú eru liðin orðin 12 talsins í sænsku úrvalsdeildinni en Stockholm Eagles og Nassjö eru nýju liðin frá því á síðustu leiktíð. Þá hafa þær breytingar einnig orðið að Brynjar Þór Björnsson er kominn heim í KR frá Svíþjóð og Logi Gunnarsson hefur sagt skilið við Solna Vikings og leikur nú í Frakklandi. Þá er Helgi Már Magnússon einnig farinn úr sænsku deildinni og verður spilandi þjálfari hjá KR í vetur.
Mynd/ Jakob Örn Sigurðarson leikmaður Sundsvall Dragons er hér með íslenska landsliðinu í Evrópukeppninni í ágúst.




