spot_img
HomeFréttirSá "vitlausan" landsleik

Sá “vitlausan” landsleik

 

Já það getur á stundum verið flókið að græja sér miða á landsleiki og stundum komast færri að en vilja.  Í janúar sl. gerðist sá ótrúlegi atburður hinsvegar að Kristín Helga Kristinsdóttir nokkur ætlaði að gera sér, föður sínum og systir glaðan dag sl. sunnudag og skella sér á landsleik.  Leikurinn, stórleikur gegn Tékkum og umspil fyrir HM 2019.   

 

Af frásögn Kristínar að dæma má gera ráð fyrir að tilhlökkun til leiksins hafi verið mikil.  Það sem hinsvegar Kristín flaskaði á og líkast til hefur verið mikil undrun þegar hún mætti í Laugardalshöllina er að þar var verið að spila okkar ástsæla körfuknattleik, en hún var í þeirri meiningu að um væri að ræða landsleik í Handbolta.  

 

Atli Fannar Bjarkason, Sauðkrækingur og ritstóri Nútímans er körfuknattleiksunandi mikill og átti han ansi gott skot á "Tíst" Kristínar þegar hann spurði eins og öllum er ljóst hvort "að þetta hafi nú þá að lokum blessast"

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -