Elvar Már Friðriksson og samherjar hans í Neptunas Klaipeda unnu 105–82 sigur á botnliði Jonava í litháísku úrvalsdeildinni. Með sigrinum heldur liðið sér í fimmta sæti deildarinnar með sex unna leiki.
Elvar Már lét vel að sér kveða í leiknum og lauk keppni með 11 stig og 5 stoðsendingar.