HomeFréttirRytas með spennusigur í Grikklandi

Rytas með spennusigur í Grikklandi

 
Tveir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik í kvöld þar sem Lietuvos Rytas unnu sannkallaðan spennusigur í Grikklandi og það af vítalínunni þegar 3,1 sekúnda var til leiksloka. Þá vann Lottomatica Roma sinn fyrsta leik í undanriðlum.
Panathinaikos 67-68 Lietuvos Rytas
Khalid El-Amin var hetja Rytas þegar hann setti niður sigurstigin af vítalínunni í kvöld. Brad Newley var samt stigahæstur hjá Rytas með 16 stig og 5 fráköst en hjá heimamönnum í Panathinaikos var töffarinn Mike Batiste með 11 stig og 6 fráköst. Þessi tvö lið eru nú jöfn á toppi E-riðils með 3 sigra og 2 tapleiki.
 
Union Olimpija 76-87 Lottomatica Roma
Nihad Djedovic var stigahæstur hjá Roma í kvöld með 20 stig, 4 fráköst, 4 stolna bolta og 3 stoðsendingar en sigurinn var sá fyrsti hjá Roma í undanriðlunum. Kenny Gregory var stigahæstur hjá Olimpija með 18 stig og 4 fráköst.
 
Á morgun fara svo sex leikir fram í Meistaradeildinni og ber þar hæst viðureign Maccabi Electra og Barcelona.
 
Mynd/ Liðsmenn Rytas fögnuðu ógurlega í Grikklandi í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -