Leikmaður ÍR, Ryan Taylor, hefur samkvæmt heimildum verið dæmdur í þriggja leikja bann af aga og úrskurðanefnd fyrir brot sitt á Hlyni Bæringssyni í síðasta leik Stjörnunnar og ÍR í 8 liða úrslitum Dominos deildarinnar.
Taylor mun því missa af leik liðanna á morgun og tveimur eftir það (ef þar að kemur), en ÍR leiðir einvígið 2-1.
Ljóst að róðurinn verður erfiður fyrir Breiðhyltinga, en hann hefur í 25 leikjum með liðinu í vetur skilað 21 stigi, 10 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.





