Run & Gun fer í loftið með nýjan þátt í beinni útsendingu í kvöld klukkan 21:00.
Stjórnendurnir Máté Dalmay og Tommi Steindórs verða á sínum stað og fá til sín öflugan liðsauka, en Valsarinn Steinar Aron sest niður með þeim í kvöld til að fara yfir heitustu málin og kryfja stöðuna.
Hægt verður að fylgjast með allri umræðunni í beinni útsendingu hér að neðan á slaginu 21:00.





