HomeBónus deildinBónus deild karlaBoltinn lýgur ekki í vörutalningu: Hroki á Álftanesi, fallbaráttan og Finnur

Boltinn lýgur ekki í vörutalningu: Hroki á Álftanesi, fallbaráttan og Finnur

Nýjasti þáttur körfuboltahlaðvarpsins Boltinn lýgur ekki er kominn í loftið, en þar tekur stjórnandinn Sigurður Orri Kristjánsson á móti Gunnari Bjarti Huginssyni. Saman taka þeir fyrir öll liðin í Bónus deildinni og fara í gegnum heilmikla vörutalningu.  

Félagarnir fara yfir stöðuna á Álftanesi og spyrja hvort stemmningin þar sé í raun hroki, auk þess sem rýnt er í fallbaráttuna og meint leiðindalið Tindastóls. Þá ræða þeir svikalogn, veðmál sem verða einfaldlega að ganga upp og líta á stöðuna hjá Finni og svokölluðum flugvallakönum.  

Þátturinn er sneisafullur af umræðu um íslenska körfuboltann og er nú aðgengilegur á Spotify og hlaðvarpsveitum.

Fréttir
- Auglýsing -