Run & Gun verður í beinni útsendingu í kvöld þar sem áfram er hitað rækilega upp fyrir komandi körfuboltatímabil. Að þessu sinni verður sjónum beint út á land og farið ítarlega yfir lið Tindastóls, Hattar og Sindra.
Þeir Máté Dalmay og Tommi Steindórs fá öflugan liðsauka til að kryfja málin, en sjálfur Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls verður á línunni í þættinum til að fara yfir stöðuna, undirbúning liðanna og það helsta sem fram undan er á parketinu. Þá er Blikinn Halli Karfa einnig gestur þáttarins.
Körfuboltaáhugafólk getur fylgst með beinni útsendingu hér að neðan.




