spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaRui Costa ráðinn þjálfari Hamars - Ný stjórn tekur við

Rui Costa ráðinn þjálfari Hamars – Ný stjórn tekur við

Hamar hefur ráðið Rui Costa til að þjálfa liðið á komandi tímabili í fyrstu deild karla. Rui tekur við liðinu af Máté Dalmay sem skilaði liðinu í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili, en tók við fyrrum úrvalsdeildarliði Hauka í sömu deild fyrir komandi tímabil.

Rui kemur til liðsins frá Vitória SC í Portúgal, þar sem hann þjálfaði á síðasta ári, en þar áður var hann aðstoðarþjálfari Selfoss Körfu í fyrstu deildinni.

Tilkynning:

Hamar hefur gengið frá ráðningu á þjálfara Meistaraflokks karla, en Rui Costa hefur verið ráðinn og tekur hann við liðinu af Máté Dalmay. Rui Costa var í fyrra Þjálfari kvennaliðs Vitória SC, einu af stærstu félögum í Portúgölskum körfuknattleik. Rui var þar áður aðstoðarþjálfari Selfoss. Rui Costa er ráðinn til tveggja ára en Nýverið tók ný stjórn við körfuknattleiksdeild Hamars. Kristinn Ólafsson leiðir nýja stjórn, en stjórnin bindur miklar vonir til samstarfsins með Rui Costa. Ný stjórn leggur áherslu á að efla yngriflokka starfið, samhliða því að auka umgjörðinna í kringum meistaraflokka félagsins.

Fréttir
- Auglýsing -