Síðasti dagur félagsskipta var þann 5. febrúar síðastliðinn og eins og við var búist urðu nokkrar hræringar á leikmannamarkaðnum. Lárus Jónsson og Þórunn Bjarnadóttir færðu þjónustu sína yfir til Hamars í Hveragerði og Philip Perre fyrrum leikmaður Þórs í Þorlákshöfn er kominn til liðs við Valsmenn í 1. deild karla.
Perre lék síðast með Þór gegn FSu þann 21. janúar síðastliðinn en klárar tímabilið með Val en hann var með 19,7 stig og 9,3 fráköst að meðaltali í leik hjá Þórsurum.
Þá hefur Brynjar Karl Sigurðsson skipt úr FSu í Val, Loftur Þór Einarsson úr Blikum í HK og ætlar að spreyta sig í 2. deild. Sigurður Þór Einarsson er kominn frá Horsens í Danmörku þar sem hann skilur eftir fyrirliðabandið þar í landi og er genginn í raðir Hauka. Bergdís Ragnarsdóttir sem í sumar skipti yfir í KR frá Fjölni er komin aftur heim í Grafarvoginn og Erna Lind Teitsdóttir fær nú far með föður sínum Teiti Örlygssyni á æfingar í Garðabæ en þangað skipti hún úr Njarðvík sem og Dagmar Traustadóttir.
Mynd/ Hjalti Vignisson: Philip Perre er kominn til liðs við Valsmenn í 1. deild.





