HomeFréttirRose funheitur gegn Spurs

Rose funheitur gegn Spurs

 
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Derrick Rose leiddi Chicago Bulls til sigurs gegn efsta liði vesturstrandarinnar, San Antonio Spurs. Rose setti persónulegt met í leiknum er hann lét 42 kvikyndum rigna yfir Spurs.
Chicago 109-99 San Antonio
Eins og fyrr segir var Derrick Rose með 42 stig hjá Bulls og 8 stoðsendingar. Tony Parker gerði 26 stig og gaf 4 stoðsendingar í liði Spurs en Bulls hafa nú unnið 15 af síðustu 16 heimaleikjum sínum.
 
Phoenix 106-112 Dallas
Dirk Nowitzki fór mikinn í liði Dallas með 35 stig en Channing Frye gerði 24 stig og tók 8 fráköst hjá Suns.

Þá verða ekki fleiri leikir í NBA deildinni um helgina þar sem nú er hafin All-Star helgin og að þessu sinni fer hún fram í Los Angeles.

 
Mynd/ Rose gerði Spurs lífið leitt í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -