Fjölnir lagði Grindavík í kvöld í sjöttu umferð Subway deildar kvenna 89-84.
Eftir leikinn er Fjölnir í 4.-5. sæti deildarinnar ásamt Haukum á meðan að Grindavík er í 6.-7. sætinu ásamt Breiðablik.
Karfan spjallaði við Robbi Ryan leikmann Grindavíkur eftir leik í Dalhúsum. Robbi átti góðan dag þrátt fyrir tapið, skilaði 27 stigum, 8 fráköstum og 5 stoðsendingum í leiknum.