Sautjándu umferð Dominos deildar karla lýkur með risaslag í DHL Höllinni í kvöld. Þar mætast liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í úrslitaeinvígi síðasta tímabils.
KR hafði betur í einvíginu 3-2 en úrslitaleikurinn fór einmitt fram í DHL-höllinni þar sem KR tryggði titilinn með nokkuð öruggum sigri.
Þessi sömu lið mættust í nóvember síðast liðnum í fyrri leik liðanna í deildar keppninni. Þar hafði Grindavík 94-84 sigur í eftirminnilegum leik.
Leikurinn hefst kl 20:00 í DHL höllinni en KR börgerinn frægi verður víst sérlega góður í tilefni þessa stórleiks. Formaður kkd Grindavíkur er hið minsta klár í slaginn.
Þrír leikir fara einnig fram í 1. deild karla þar sem spennan á toppnum er að verða óbærileg. Stórleikurinn fer fram í Hveragerði þar sem Skallagrímur er í heimsókn. Hamar vann síðasta leik liðanna ansi sannfærandi í Borgarnesi og því fróðlegt að sjá hvernig þessi leikur fer.
Leikir dagsins:
Dominos kk:
KR – Grindavík kl 20:00 (Í beinni á Stöð 2 Sport)
1. deild karla:
Vestri – Gnúps kl 19:15 (Í beinni útsendingu á Jakinn TV)
Fjölnir – Snæfell kl 19:15
Hamar – Skallagrímur kl 19:15




