HomeFréttir“Reykjavíkurstórveldið, það kemur alla leiðina úr Breiðholti” sungu stuðningsmenn ÍR

“Reykjavíkurstórveldið, það kemur alla leiðina úr Breiðholti” sungu stuðningsmenn ÍR

 
ÍR-ingar minntu allhressilega á sig með stórum sigri á Stjörnunni í Breiðholtinu í kvöld, 100-81. Leikurinn var hnífjafn framan af og munaði aðeins fjórum stigum á liðunum þegar einn leikhluti var eftir en þá tóku heimamenn við sér og hreinlega völtuðu yfir gestina úr Garðabænum. Stigahæstur í liði ÍR var Jimmy Bartolotta með 31 stig og 5 stoðsendingar en næstir voru Nemanja Sovic með 15 stig og Eiríkur Önundarson með 14 stig. Hjá Stjörnunni var Renato Lindmets stigahæstur með 24 stig og 9 fráköst en næstir voru Jovan Zdravevski með 16 stig og Justin Shouse með 11 stig.
Stjarnan byrjaði leikinn betur og höfðu náð 7 stiga forskoti strax eftir fjórar mínútur af leik, 2-9. Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR tók strax við sér og tók leikhlé til þess að koma sínum mönnum inní leikinn. Þeim gekk erfiðlega að minnka muninn en það var ekki fyrr en undir lok leikhlutans sem þeim tókst að ná muninum niður í 5 stig, 14-19. Stjarnan hafði komist í 11-17 en ÍR minnkaði muninn á seinustu mínútum leikhlutans.
 
ÍR kom sér smá saman inní leikinn þegar leið á annan leikhluta en þeir náðu að jafna í stöðunni 24-24 þegar um það bil þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum. Nemanja Sovic varði skot frá Ólafi Aron Ingvasyni og heimamenn keyrðu í sókn þar sem Eiríkur Önundarson setti niður glæsilegan þrist. Þeir komust svo yfir í fyrsta skiptið í leiknum þegar leikhlutinn var tæplega hálfnaður, 26-24. Það gekk lítið sem ekkert hjá gestunum á þessum tímapunkti en þeir höfðu aðeins skorað 5 stig þegar það voru liðnar 6 mínútur af leikhlutanum. Gunnar Sverrisson tók leikhlé þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks í stöðunni 26-28 Stjörnunni í vil. Það voru hins vegar gestirnir úr Garðabænum sem áttu næstu mínúturnar og komust í 6 stiga forskot, 28-34 þegar ein mínúta var eftir af fyrri hálfleik. ÍR gerði góða atlögu að Stjörunni á seinustu mínútu leiksins og náðu muninum aftur niður í 2 stig þegar 4 sekúndur voru eftir, 34-36. Justin Shouse tók þá til sinna ráða og nýtti þessar 4 sekúndur til hins ýtrasta er hann brunaði upp völlinn og tókst að laumast á milli varnarmanna ÍR og leggja boltan ofaní körfuna, 34-38 í hálfleik.
 
Stigahæstir í hálfleik hjá Stjörunni voru Jovan Zdravevski og Renato Lindmets með 11 stig hvor en næstur var Justin Shouse með 9 stig. Hjá ÍR var Jimmy Bartolotta stigahæstur með 14 stig en næstir vor Eiríkur Önundarson og Kelly Beidler með 5 stig hvor.
 
Liðin skiptust á að skora á fyrstu mínútum þriðja leikhluta. Þegar ÍR virtist vera að gera atlögu að Stjörnunn lokuðu gestirnir á það og að sama skapi voru ÍR-ingar snöggir að minna á sig ef Stjarnan virtist vera að takast á flug. Þegar um það bil fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum hafði heimamönnum tekist að jafna í stöðuni 44-44. Kelly Beidler fékk sína fjórðu villu þegar leikhlutinn var um það bil hálfnaður og var því settur í kælingu á bekknum. Aðrir leikmenn á vellinum voru langt frá villuvandræðum en leikurinn var mjög prúðmannlega leikinn og létu dómararnir lítið fyrir sér fara, sem er að margra mati dæmi um mjög góða dómgæslu. Leikurinn var hníf jafn næstu mínútur og mátti vart sjá mun á leik liðanna. Þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum hafði Eiríkur Önundarson náð sér í tvær villur á stuttum tíma og var því kominn með 4 villur. Það kom hins vegar ekki að sök því stuttu seinna koma hann heimamönnum yfir með stórum þrist, 56-54. Stjörnumenn voru klaufar á lokamínútum þriðja leikhluta og fengu dæmdar á sig sóknarvillur tvær sóknir í röð sem sendi ÍR-inga á línuna. Í lok þriðja leikhluta var það svo heimamaðurinn Jimmy Bartolotta sem setti niður flautukörfuna og höfðu ÍR-ingar því yfir þegar einn leikhluti var eftir, 61-56.
 
ÍR gaf ekkert eftir í upphafi fjórða leikhluta og þegar tvær mínútur voru liðnar höfðu þeir náð forskotinu upp í 9 stig, 69-60. Leikmenn ÍR léku á als oddi þangað til að Teitur Örlygsson sá sig knúinn að taka leikhlé þegar tæplega fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum. ÍR hafði þá náð forskotinu upp í 13 stig og höfðu náð að loka á alla sóknartilburði gestana, 77-64. Það dugði þó skammt til því þegar leikhlutinn var tæplega hálfnaður tók Teitur aftur leikhlé í stöðunni 81-64. Stjarnan var nánast lömuð í fjórða leikhluta gegn frábærum leik ÍR. Stjarnan skipti í kjölfarið yfir í svæðisvörn sem heimamenn voru ekki lengi að leysa því þeir settu stóra þrista næstu þrjár sóknir og fóru langleiðina með að tryggja fjórða heimasigurinn í röð, 92-69. Þegar ein og half mínúta var eftir skiptu báðir þjálfarar minni spámönnum inná og úrslit leiksins því ráðin. Það voru því heimamenn sem fóru með öruggan 19 stiga sigur, 100-81.
 
Með sigrinum hoppaði ÍR upp í 6. sæti deildarinnar með 16 stig en Stjarnan er sem fyrr í 5. sæti með 20 stig.
 
Heildarskor:
 
ÍR: James Bartolotta 31/5 stoðsendingar, Nemanja Sovic 15/4 fráköst, Eiríkur Önundarson 14/6 fráköst, Kelly Biedler 13/10 fráköst/6 stoðsendingar, Sveinbjörn Claesson 12/5 stoðsendingar, Níels Dungal 10, Hjalti Friðriksson 5, Davíð Þór Fritzson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Þorgrímur Emilsson 0, Tómas Aron Viggóson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0.
 
Stjarnan: Renato Lindmets 24/9 fráköst, Jovan Zdravevski 16, Justin Shouse 11/6 fráköst/8 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 8/7 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 6, Ólafur Aron Ingvason 5, Dagur Kár Jónsson 3, Daníel G. Guðmundsson 3/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason 3, Guðjón Lárusson 2, Christopher Sófus Cannon 0, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0.
 
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Jón Þór Eyþórsson
 
Umfjöllun og mynd: Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -