spot_img
HomeFréttirRemy meiddur á hásin

Remy meiddur á hásin

Leikmaður Keflavíkur Remy Martin mun ekki taka frekari þátt í fyrsta leik undanúrslita liðsins gegn Grindavík samkvæmt forráðamanni liðsins. Remy byrjaði leik kvöldsins af krafti og var kominn með 18 stig eftir aðeins 15 mínútna leik er hann meiddist á hásin og þurfti að styðja við hann útaf.

Aðstoðarþjálfari liðsins Magnús Þór Gunnarsson staðfesti í viðtali við Körfuboltakvöld í hálfleik að Remy væri á leiðinni á sjúkrahús. Þar yrði tekin mynd og vonuðust þeir eftir að fá niðurstöður um hversu alvarleg meiðsl hans væru sem fyrst. Ljóst væri þó að um hásinarmeiðsl væri að ræða, en að hún væri ekki slitin.

Fréttir
- Auglýsing -