Fjórir leikir fóru fram í þrettándu umferð Euroleague í kvöld. Öll heimaliðin náðu í góða sigra þetta kvöldið en nokkur spenna var í leikjunum.
Spennan var þó víðsfjarri í Tyrklandi þar sem núverandi meistarar Fenerbache völtuðu yfir Rauðu Stjörnuna 82-56. Litháenarnir í Zalgiris Kaunas unnu lið Brose Bamberg með fjórum stigum í háspennu leik.
Panathinikos sem er án síns besta manns Nick Calathes en það kom ekki að sök gegn Maccabi Tel Aviv en grikkirnir unnu nokkuð sannfærandi 89-76 sigur.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Valencia heimsótti stórlið Real Madrid í Spánarslag vikunnar. Eftir mikla spennu fram í þriðja leikhluta setti Real í gírinn í fjórða leikhluta og vann að lokum stóran sigur 91-72. Ungstirnið Luka Doncic var vikið úr húsi í öðrum leikhluta er hann fékk tæknivillu fyrir mótmæli. Örfáum mínútum áður hafði hann fengið óíþróttamannslega villu sem þýðir að þátttöku hans var lokið í leiknum.
Tryggvi Snær tók þátt í leiknum og endaði með þrjú stig á fjórum mínútum í leiknum. Valencia hefur enn ekki unnið leik í Euroleague frá því í fjórðu umferð og hafa nú tapað níu leikjum í röð.
Helstu tilþrifin úr leik Valencia og Real Madrid má finna hér að neðan:




