spot_img
HomeFréttirRagnheiður og Eckerd Tritons lögðu Rollins örugglega

Ragnheiður og Eckerd Tritons lögðu Rollins örugglega

Ragnheiður Björk Einarsdóttir og Eckerd Tritons lögðu Rollins í gær í bandaríska háskólaboltanum, 58-82.

Eckerd hafa verið afar sigursælar þetta tímabilið, unnið sextán leiki og tapað tveimur.

Á 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ragnheiður sex stigum, tveimur fráköstum og stolnum bolta.

Næsti leikur Ragnheiðar og Eckerd er þann 16. febrúar gegn Embry-Riddle.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -