spot_img
HomeFréttirRagnar Gylfason verður ekki með Fjölni

Ragnar Gylfason verður ekki með Fjölni

11:06

{mosimage}
(mynd: fjolnir.is/karfa)

Á heimasíðu Fjölnis, www.fjolnir.is/karfa, kemur fram að Ragnar Gylfason ætli að taka sér frí um óákveðinn tíma. Þetta er mikill missir fyrir Grafarvogsliðið en Ragnar var einn besti leikmaður 1. deildar í fyrra en þá lék hann með FSu.

Á heimasíðunni segir að hann geti ekki sinnt náminu af alvöru, en hann er í verkfræði við HÍ, og því þurfti karfan að víkja enda vilji hann leggja sig 100% fram í því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Þetta er mikil blóðtaka fyrir Fjölni en þeir hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni. Liðinu var ekki spáð miklu gengi í vetur og þurfa þeir því á öllu sínu að halda.

Fréttir
- Auglýsing -