spot_img
HomeFréttirPétur Rúnar eftir að hann tryggði Stólunum oddaleik um titilinn "Náði sem...

Pétur Rúnar eftir að hann tryggði Stólunum oddaleik um titilinn “Náði sem betur fer að klára þetta”

Valur lagði Tindastól í kvöld í fjórða leik úrslita Subway deildar karla eftir framlengdan leik, 97-95. Með sigrinum knýja Stólarnir fram oddaleik um titilinn, sem fer fram komandi miðvikudag 18. maí kl. 20:15 í Origo Höllinni.

Tölfræði leiks

Undir lokin var það bakvörður Tindastóls Pétur Rúnar Birgisson sem stal boltanum, keyrði upp völlinn og skoraði sigurkörfuna með sniðskoti þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir. Valur náði ekki að svara og fóru Stólarnir því með sigur af hólmi.

Karfan spjallaði við Pétur Rúnar eftir leik í Síkinu.

Fréttir
- Auglýsing -