HomeFréttirPeter Öqvist : vorum að spila körfubolta á mjög háu getustigi

Peter Öqvist : vorum að spila körfubolta á mjög háu getustigi

 Peter Öqvist var augljóslega mjög óánægður með úrslitin eftir leikinn og lét tilfinningar sýnar í ljós. Peter hefur sýnt það í þessum leikjum sem hann hefur stýrt liðinu að hann er að leggja sig allan fram við verkefnið og það eru því miklar tilfinningar í spilunum.  Hann var stoltur af því hvernig liðið spilaði í fyrri háflelik og vildi leggja mikla áherslu á að það hefði ekki verið Svartfjallaland sem spilaði svona illa heldur hafi það verið Íslenska liðið sem spilaði stórkostlega.  

 

 "Mér fannst fyrri háflleikurinn vera frábær.  Við vorum að spila eftir okkar bestu getu og þessir strákar geta spilað á þessu getustigi.  Mér finnst við alls ekki geta talað um að Svartfjallaland hafi verið lélegir, vegna þess að við vorum góðir og við vorum að spila körfubolta á mjög háu getustigi.  Við gerðum það sama í Israel, við spiluðum í Nokia Arena sem er mjög erfiður útvöllur.  Við vorum yfir eftir fyrsta leikhluta, leikurinn var hnífjafn í hálfleik en svo rennur leikurinn úr okkar höndum í seinni hálfleik.  Mér finnst við eiga að vera stoltir af þeim leik sem liðið sýndi í fyrri hálfleik.  Seinni hálfleikur, klassíst, við vorum að passa uppá forskotið.  Við hættum að spila af þeirri ákefð sem við höfðum spilað á, það ásamt því að missa Pavel í meiðsli og villuvandræði gerði þetta erfitt fyrir okkur.  Þetta var jafn leikur en aðalatriðið er að í 20 mínútur vorum við ekki að spila okkar leik.  Ef við höfðum haldið ákefðinni og haldið áfram að spila með því hugarfari held ég að við hefðum náð sigri.  Svartfjallaland spilaði mjög góðan seinni hálfleik, þeir eru með gott lið".  

 

Taylor Rochestie sást varla í fyrri hálfleik og tókst Íslenska liðinu að loka vel á alla hans möguleika þá, það gjörbreyttist hins vegar í seinni hálfleik og hann gekk á lagið.  

 

"Mér fannst við loka vel á Taylor Rochestie, hann skoraði aðeins 3 eða 4 stig í Svartfjallalandi og í fyrri hálfleik í dag.  Það er tvennt, í fyrst alagi, þeir leituðu meira á Taylor vegna þess að þeir vildu nýta sér stóru leikmennina sína.  Það er þeirra styrkleiki.  Í seinni hálfleik leita þeir meira á Rochestie og létu reyna á skotið hans og í dag átti hann góðan leik". 

 

[email protected]

mynd: Þorsteinn Eyþórsson

Fréttir
- Auglýsing -