HomeFréttirPavel: Verða örugglega ekki fleiri 100 stiga leikir

Pavel: Verða örugglega ekki fleiri 100 stiga leikir

 
Borgarnes, Borgarnes, Borgarnes hrópuðu stuðningsmenn Snæfells í kvöld og á mánudag þegar Pavel Ermolinskij fór á vítalínuna í leikjunum tveimur sem liðnir eru í undanúrslitaseríu KR og Snæfells. Í Borgarnesi sleit kappinn einmitt barnsskónum, í höfuðvígi erkifjenda Snæfellinga. Hvort það sé virðingarvottur eða stúkutaktík til að koma leikmanninum á einhvern hátt úr jafnvægi þá hafði það ekki mikið að segja í kvöld þar sem Pavel bauð upp á myndarlega þrennu, 18 stig, 15 fráköst og 10 stoðsendingar, þá var leikstjórnandinn einnig með fjögur varin skot.
,,Við vorum komnir með bakið dálítið upp að vegg fyrir þennan leik í kvöld en tókst að spila betri bolta en Snæfell. Við spiluðum kannski dálítið eins og þeir gerðu í fyrsta leiknum, við vorum miklu betri en þeir rétt eins og þeir voru betri en við á mánudag. Það virtist allt vera að fara ofan í hjá okkur,“ sagði Pavel en KR-ingar voru með 56% þriggja stiga nýtingu þar sem 14 af 25 þristum þeirra í leiknum fundu körfuna.
 
Hvernig verður þá þriðji leikurinn, verður ekki allt í lás þar nú þegar bæði lið hafa tekið út lélega leikinn sinn í seríunni?
,,Jú jú, ég held að skorið í þeim leik verði svona á bilinu 56-55, eitthvað svoleiðis. Það verða alveg örugglega ekki fleiri 100 stiga leikir héðan í frá, lítið um opin skot og mikil barátta. Alvöru bolti bara,“ sagði Pavel en Hólmarar voru ánægðir með að hafa náð Pavel úr takt í fyrsta leiknum, fannst honum sjálfum þörf á því að svara þeim í leiknum í kvöld eða var fyrsti leikurinn ekkert að flækjast fyrir honum?
 
,,Ég var ekkert að fara að breyta mínum leikstíl til að aðlaga hann að taktíkinni hjá Inga Þór. Ég bara hélt áfram að spila minn bolta, ég spilaði bara illa í fyrsta leiknum en það var ekkert út af því að Snæfell gerði einhverja stórkostlega hluti, þeir spiluðu samt fasta vörn á mig,“ sagði Pavel og kvað þurfa meira til en þetta til að komast inn í hausinn á sér.
 
Fréttir
- Auglýsing -