HomeFréttirPálmi: Kom aldrei til greina að hætta

Pálmi: Kom aldrei til greina að hætta

 
,,Við gáfumst aldrei upp og vorum t.d. 15 stigum yfir í hálfleik en Grindavík vann það upp á fimm mínútum svo við vissum að bæði lið gætu skorað mikið af stigum svo við misstum aldrei trúna. Ég náði m.a. að setja tvo þrista þarna á lokamínútunum svo það kom aldrei til greina að hætta og við héldum bara áfram svo ég er mjög sáttur,” sagði Pálmi Freyr Sigurgeirsson í samtali við Karfan.is eftir frækinn sigur Hólmara gegn Grindavík í Iceland Express deild karla í kvöld. Lokatölur 86-90 Snæfell í vil eftir hádramatískar lokamínútur í Röstinni og meistarar Snæfells nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar.
,,Við hefðum haft góð not af Ryan Amoroso í kvöld enda setur Pettinella 35 stig á okkur og tekur 20 fráköst. Þá hefðum við líka haft góð not af Emli sem einnig er meiddur svo sigurinn er sterkur enda ætluðum við ekki að gefa neitt eftir hér í kvöld enda leikur upp á fyrsta sætið,” sagði Pálmi sáttur við veruna á toppnum. Hvernig líst honum annars á framhaldið?
 
,,Það er ekki hægt að segja að toppsætið sé öruggt enda fjögur lið í einum hnapp og þó við séum efstir þá getur einn leikur breytt öllu þannig að við megum ekkert slaka á,” sagði Pálmi en var hann sáttur við 22 stig og 10 fráköst hjá nýja manninum Zeljko Bojovic. ,,Já, ég var gríðarlega sáttur með hann, duglegur og kraftmikill strákur og akkúrat það sem við þurftum. Hann getur sett þrista og spilað inni í teignum þannig að hann er happafengur,” sagði Pálmi sem gerði 15 stig og tók 5 fráköst fyrir Snæfell í kvöld.
 
Mynd/ Jón Björn: Pálmi og Nonni Mæju, höfundar Snæfellssigursins í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -