HomeBónus deildinBónus deild karlaÓvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn

Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg.

Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þau lið í gegnum tíðina sem reyndu að kaupa titilinn án árangurs, ásamt ýmsu öðru sem bar á góma í lengri kantinum.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -