Fáliðaðir Ármenningar voru lítil fyrirstaða fyrir Þórsara í gærkvöld þegar norðanmenn báru sigurorð af þeim 95 – 52 í 1. deildinni. Heimamenn byrjuðu leikinn af töluverðum krafti en gestirnir komu fljótt til baka og leiddu leikinn með þremur stigum eftir fyrsta fjórðung. Heimamenn vöknuðu þó fljótt og náðu þægilegu forskoti á gestina. Heimamenn héldu gestunum í þægilegri fjarlægð og fögnuðu að lokum öruggum 95-52 sigri í þó bragðdaufum leik.
Eins og fyrr segir, byrjuðu Þórsarar leikinn af miklum krafti og komust fljótt í 12:3 og virtust hreinlega ætla að valta yfir gestina. Gestirnir vöknuðu þó skyndilega til lífsins og fóru hægt og bítandi að nálgast heimamenn. Gestirnir náðu góðum 15-3 spretti og leiddu því leikinn með þremur stigum þegar fyrsta fjórðungi lauk, 15-18. Þórsarar byrjuðu annan leikhluta af meiri krafti og fóru að pressa gestina og keyra hraðann upp. Baldur Már Stefánsson kom sterkur af bekknum fyrir heimamenn og setti niður átt stig sem hjálpuðu Þórsurum að ná átján stiga forskoti en Þórsarar leiddu leikinn 42 – 24 þegar liðin gengu til búningsklefa.
Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn betur en gestirnir og héldu áfram að auka forskotið. Heimamenn höfðu þann lúxus í kvöld að geta róterað liðinu töluvert þannig að allir leikmenn liðsins fengu spilatíma. Björn Benediktsson og Hrafn Jóhannesson nýttu sín tækifæri ágætlega en Björn setti niður átta stig á meðan Hrafn setti niður sex. Hjá gestunum var einungis lífsmark með þeim Steinari Aronssyni og Illuga Auðunssyni en sóknarleikur gestanna fór mest í gegnum þá félaga. Steinar setti niður 19 stig í kvöld en Illugi 12 stig. Framlag þeirra tveggja næði fámennum gestunum ekki til að ógna Þórsurum neitt að ráði. Þórsarar fögnuðu því öruggum 95-52 sigri í bragðdaufum leik.
Stig heimamanna: Dimitar Petrusev 20 stig, Baldur Már Stefánsson 19, Óðinn Ásgeirsson 9 stig, 10 fráköst, Konrad Tota 8, Björn Benediktsson 8, Ólafur Torfason 6, Sindri Davíðsson 6, Hrafn Jóhannesson 6, Wesley Hsu 5, Benedikt Pálsson 4, Sigmundur Eiríksson 2 og Stefán Karel Torfason 2
Stig gestanna: Steinar Aronsson 19 stig, Illugi Auðunsson 12, Daði Grétarsson 8, Árni Sigurðsson 7, Egill Vignisson 4, Aron Kárason 2 stig.
Ljósmynd/ Rúnar Haukur: Stefán Karel Torfason, miðherji U 16 ára landsliðs Íslands, sem varð Norðurlandameistari á síðasta ári sækir hér að körfu Ármanns í leiknum.
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson





