Njarðvík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með sigri á Haukum í IceMar höllinni, 95-70.
Með þessum sigri lauk úrslitaeinvíginu með 3-1 sigri Njarðvíkur, sem steypti þar með ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka af stóli eftir harða baráttu.
Karfan spjallaði við Einar Árna Jóhannsson þjálfara Njarðvíkur eftir að bikarinn fór á loft.



