Njarðvík fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í úrvalsdeild kvenna í körfubolta eftir öruggan og afar sannfærandi 95-70 sigur á ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka í IceMar-höllinni.
Með sigrinum lauk úrslitaeinvíginu með 3-1 sigri Njarðvíkur, sem tryggði félaginu Íslandsmeistaratitilinn í þriðja skipti í sögu þess. Stemningin í húsinu var rafmögnuð en 1032 áhorfendur mættu til að fylgjast með þessum úrslitaleik þar sem heimakonur sýndu mikinn styrk þegar mest á reyndi. Þessi titill er sérstaklega sögulegur þar sem þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitillinn sem Njarðvík vinnur í nýju glæsilegu íþróttahúsi sínu, IceMar-höllinni, sem iðaði af lífi á þessu sögulega kvöldi.

Fyrirfram var búist við hörkurimmu enda höfðu Haukar verið deildarmeistarar eftir öfluga frammistöðu í deildarkeppni tímabilsins og mættu til leiks sem ríkjandi meistarar. Njarðvík hafði hins vegar einhvers að hefna eftir að hafa þurft að sætta sig við tap í úrslitum í nokkur skipti á síðustu árum. Sú reynsla virtist styrkja liðið sem mætti með gríðarlegan vilja og andlegan styrk inn í úrslitakeppnina. Stuðningurinn við liðið var sömuleiðis hreint út sagt stórkostlegur allan tímann. Njarðvíkingar fjölmenntu á hvern einasta leik og studdu dyggilega við bakið á sínum konum, hvort sem leikið var á heimavelli eða á útivelli, og skapaði sá stuðningur mikilvægan meðbyr.
Njarðvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og settu tóninn strax í fyrsta leikhluta. Vörnin var þétt og sóknarleikurinn flæddi vel, sem varð til þess að þær leiddu 18-10 eftir fyrstu tíu mínúturnar. Haukar mættu hins vegar ákveðnari til leiks í öðrum leikhluta og tókst að hleypa mikilli spennu í hlutina. Gestirnir fundu taktinn í sókninni og skoruðu 30 stig gegn 29 stigum Njarðvíkur í fjörugum leikhluta. Staðan í hálfleik var því 47-40 og leikurinn enn opinn, þótt Njarðvík héldi sjö stiga forystu.
Það var svo í þriðja leikhluta sem Njarðvík gerði endanlega út um leikinn með frábærum kafla. Heimakonur gjörsamlega lokuðu vörninni og keyrðu yfir gestina. Þær unnu leikhlutann afgerandi 30-16 og breyttu stöðunni í 77-56 fyrir lokafjórðunginn. Í fjórða leikhluta var eftirleikurinn auðveldur fyrir Njarðvík sem sigldi sigrinum örugglega í höfn og vann að lokum með 25 stiga mun.

Danielle Victoria Rodriguez átti stórleik fyrir Njarðvík og var valin besti leikmaður úrslitanna eftir leikinn. Hún fór hreinlega á kostum og var nálægt því að ná þrennu, en hún skoraði 36 stig, tók 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Brittany Dinkins átti sömuleiðis stórkortlegan leik og skilaði glæsilegri þrennu með 25 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar. Þá áttu Paulina Hersler og Hulda María Agnarsdóttir báðar dýrmæt framlög með 9 stig hvor. Hjá Haukum var Krystal-Jade Freeman atkvæðamest með myndarlega tvennu, 25 stig og 13 fráköst. Amandine Justine Toi skoraði 17 stig og Þóra Kristín Jónsdóttir bætti við 16 stigum og 5 stoðsendingum.
Dómarar leiksins voru þeir Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson og Jóhannes Páll Friðriksson. Leikurinn fer í sögubækurnar sem mikill fagnaðardagur í Njarðvík þar sem langri bið og svekkelsi fyrri ára var fagnað á heimavelli.
Myndasafn (Gunnar Jónatansson)



