Tindastóll mætir enska liðinu Bristol Flyers á útivelli í ENBL-deildinni í körfubolta í kvöld klukkan 19:45 að staðartíma. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Tindastóll TV.
Skagfirðingar fara ótrauðir til leiks enda taplausir það sem af er keppni og freista þess að landa enn einum dýrmætum útisigrinum í Evrópu gegn heimamönnum í Bristol.




