Íslenska kvennalandsliðið vann sinn annan leik á smáþjóðaleikunum í dag með öruggum sigri á Mónakó, 81-55. Úrslit leiksins urðu fljótt ljós og voru yfirburðir Íslenska liðsins talsverðir. Helena Sverrisdóttir var stigahæst og sýndi styrk sinn inn á milli en ljóst er að Íslenska liðið er töluvert sterkara en mótherjar liðsins í dag og reyndi því ekki mikið á lykilmenn liðsins. Ívar Ásgrímsson gat leyft sér að spila á mörgum leikmönnum og kom það ekki að sök.
Ísland tók frumkvæðið strax í upphafi leiks og var þó nokkur munur á liðunum. Ísland spilaði virkilega góða vörn sem Monako átti í stökustu vandræðum með að finna leið framhjá. Margrét Rósa og Helena fóru fyrir Íslenska liðinu í sókn og höfðu skorað 14 stig eftir fyrsta leikhluta samanlagt, 9 stig hjá Margréti og Helena með 5. Það var ekki fyrr en Monakó tók leikhlé undir lok fyrsta leikhluta að það lifnaði aðeins yfir sókninni hjá þeim. Ísland leiddi eftir fyrsta leikhluta með 10 stigum, 23-13.
Sara Rún átti góða innkomu í öðru leikhluta og náði forskoti Íslands uppí 13 stig í stöðunni 33-20. Stuttu seinna fékk Helena þrjár villur á ótrúlegum 30 sekúndna kafla og óhætt að setja spurningamerki við allavega tvær af þessum villum, en Helena settist þá á bekkinn og Bryndís kom inn í hennar stað. Monakó tók aftur leikhlé í seinni hluta annars leikhluta þegar Íslenska liðið hafði sett 9 stig í röð og munurinn kominn upp í 19 stig, 45-26. Íslenska liðið bætti við tveimur stigum eftir það en Monakó náði ekki að skora og því munaði 21 stigi í hálfleik, 47-26.
Stigahæst í liði Íslands í hálfleik var Margrét Rósa með 9 stig en næstar voru Sara Rún og Helena með 7 stig hvor en Helena bætti einnig við 6 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Skotin voru ekki að detta hjá Íslenska liðinu í upphafi þriðja leikhluta og eftir rúmar tvær mínútur og 8 stig Monakó gegn 2 stigum Íslands tók Ívar leikhlé fyrir Ísland, 49-34. Íslenska liðið hélt þeim lengi vel í tæpum 20 stigum en þegar leið á þriðja leikhluta tók Monakó virkilega góðan kafla og skoraði 9 stig í röð en Íslenska liðið skoraði ekki síðustu 4 mínútur leikhlutans. Það munaði því aðeins 12 stigum á liðunum þegar einn leikhluti var eftir, 59-47.
Íslenska liðið jók forskotið hægt og rólega aftur í upphafi fjórða leikhluta og áttu hreinlega leikhlutan. Á tímabili hélt Íslenska vörnin fjórar mínútur og var þá forskotið komið í 25 stig, 78-53. Ísland kláraði leikinn af miklu öryggi og höfði þess vegna 26 stiga sigur, 81-55.
Stigahæst í liði Íslands var Helena Sverrisdóttir með 16 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar. Næstar voru Margrét Rósa Hálfdánardóttir með 14 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir með 11 stig og 6 fráköst. Allir leikmenn íslenska liðsins komust á blað í leiknum og gat Ívar leyft sér að dreyfa mínútunum mjög vel, en aðeins einn leikmaður liðsins spilaði undir 10 mínútum í leiknum.
Viðtöl og myndbrot úr leiknum koma inn seinna í kvöld.
Umfjöllun : [email protected]
Mynd: Bára




