HomeFréttirÖruggt hjá Keflavík gegn grænum grönnum sínum

Öruggt hjá Keflavík gegn grænum grönnum sínum

 
Keflvíkingar minntu granna sína úr Njarðvík á það í gær hvort liðið hafi verið lengur í efstu deild kvenna. Þó Njarðvíkingar séu með efnilegt lið í sínum ranni eru Keflvíkingar enn stóra systir þarna fyrir sunnan og skelltu grönnum sínum 91-72. Jaqueline Adamshick fór mikinn með 31 stig og 19 fráköst í Keflavíkurliðinu.
Keflavík byrjaði betur og skoraði fyrstu 6 stigin, en það var ekki fyrr en á þriðju mínútu sem að Árnína Lena skoraði fyrstu stig Njarðvíkinga! Fyrsti leikhluti var mjög jafn og áttu Shayla og Ólöf Helga snilldartakta á timabili og frábært samspil! Staðan eftir fyrsta leikhluta 22-21 Keflavík í vil.
 
Í öðrum leikhluta leikhluta gekk ekkert upp hjá Njarðvik á meðan allt fór ofaní hjá heimastúlkum, þrátt fyrir að Bryndís og Hrund væru báðar komnar í villuvandræði, með 3 villur hvor í Keflavíkurliðinu og tók Jonni þær útaf. Staðan í hálfleik var 54-37 fyrir Keflavík sem tóku á rás í öðrum leikhluta.
 
Í þriðja leikhluta gekk ekkert upp hjá Njarðvíkurstelpum á meðan Keflvíkingar juku enn á forskot sitt. Njarðvíkurstelpur misstu Ditu útaf snemma í 3 leikhluta (sömu meiðsli og hafa verið að angra hana, lenti saman við Jackie og varð frá að víkja).
 
Birna Valgarðsdóttir byrjaði á því að brjóta á Shaylu í Njarðvíkurliðinu sem að hitti úr báðum vítunum sínum en eftir það höfðu Keflvíkingar leikinn algjörlega í höndum sér þar sem að Jackie átti mjög góðan leik. Jón Halldór gat veitt sér þann munað í fjórða leikhluta að setja inn reynsluminni leikmenn þar sem Aníta Eva Viðarsdóttir nýtti tækifærði vel og gerði þrjú stig. Birna og Hrund skiluðu sínum hlutverkum mjög vel, sem og Rannveig en ekki var hægt að segja það sama um Marín né Ingibjörgu þar sem að Árnína Lena og Erna Hákonar náðu að halda þeim vel niðri.
 
Hjá Njarðvík byrjaði Ólöf Helga mjög vel, en virtist ekkert ganga upp hjá henni eftir fyrsta leikhluta. Shayla mjög góð en hálfvængbrotin eftir að Dita fór útaf. Árnína, Ína og Erna voru mjög duglegar og Eyrún kom sterk inn.
 
Heildarskor:
 
Keflavík: Jacquline Adamshick 31/19 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 17/6 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 13/5 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 7/4 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 7, Hrund Jóhannsdóttir 6/7 fráköst, Rannveig Randversdóttir 5/4 fráköst, Aníta Eva Viðarsdóttir 3, Árný Sif Gestsdóttir 2, Marín Rós Karlsdóttir 0/6 stoðsendingar, Eva Rós Guðmundsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0.
 
Njarðvík : Shayla Fields 32/12 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 9/6 fráköst, Dita Liepkalne 8/10 fráköst, Heiða Valdimarsdóttir 5, Eyrún Líf Sigurðardóttir 5, Dagmar Traustadóttir 4, Anna María Ævarsdóttir 3, Erna Hákonardóttir 2, Ína María Einarsdóttir 2, Árnína Lena Rúnarsdóttir 2/4 fráköst, Jóna Guðleif Ragnarsdóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Georg Andersen
 
Ljósmynd/ Úr safni: Jaqueline Adamshick var að vanda stórkostleg í liði Keflavíkur.
 
Umfjöllun: GÓS
Fréttir
- Auglýsing -