spot_img
HomeFréttirOrri og Cardinal Stritch töpuðu með minnsta mun mögulegum

Orri og Cardinal Stritch töpuðu með minnsta mun mögulegum

Orri Hilmarsson og Cardinal Stritch Wolves máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Govenors State í bandaríska háskólaboltanum með minnsta mun mögulegum, 77-76.

Það sem af er tímabili hafa Cardinal Stritch unnið þrjá leiki og tapað ellefu.

Á 34 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Orri 9 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.

Næsti leikur Orra og Cardinal Stritch er gegn Calumet á morgun miðvikudag 12. janúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -