spot_img
HomeFréttirOrri með 15 stig gegn Marian University

Orri með 15 stig gegn Marian University

Orri Hilmarson og Cardinal Stritch Wolves máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Marian University í bandaríska háskólaboltanum, 62-73.

Það sem af er tímabili hafa Wolves unnið þrjá leiki og tapað níu.

Á 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Orri 15 stigum, 3 fráköstum og stolnum bolta.

Næsti leikur Orra og Wolves er þann 18. desember gegn Holy Cross.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -