spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaOrri frábær er Gmunden unnu sinn tíunda leik í röð

Orri frábær er Gmunden unnu sinn tíunda leik í röð

Orri Gunnarsson og svanirnir frá Gmunden lögðu Graz í austurrísku úrvalsdeildinni í dag, 77-94.

Á tæpum 27 mínútum spiluðum skilaði Orri 15 stigum, 2 fráköstum, 4 stoðsendingum og stolnum bolta.

Sem áður eru Gmunden í öðru sæti deildarinnar, enn tveimur sigrum fyrir neðan Klosterneuburg sem eru í efsta sætinu, en Gmunden hafa sigrað 10 leiki í röð og Klosterneuburg 12 í röð.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -