spot_img
HomeFréttirOpnað fyrir skráningar í körfuboltabúðir á Laugarvatni 12. til 15. júlí -...

Opnað fyrir skráningar í körfuboltabúðir á Laugarvatni 12. til 15. júlí – Síðast varð uppselt á viku!

Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir Körfuboltabúðum á Laugarvatni dagana 12.-15.júlí fyrir krakka fædd 2007-2011.

Á þessu fjögurra daga námskeiði er gist í þrjár nætur í uppábúnum rúmum með fullu fæði.

Æft er tvisvar sinnum á dag auk fyrirlestra en einnig er mikið lagt upp úr skemmtanagildinu og má þar nefna kayak-ferðir, sundlaugapartý, bubblubolta, ratleik, crazy cars og margt fleira.

Sem fyrr eru umsjónarmenn körfuboltabúðanna Rakel Margrét Viggósdóttir og Skarphéðinn Freyr Ingason en þau búa yfir áralangri reynslu úr körfuboltanum.

Við leggjum mikla áherslu á gæði og jákvæða upplifun á námskeiðinu okkar og munu reynslumiklir þjálfarar og leikmenn mæta og þjálfa á námskeiðinu ásamt því að halda fyrirlestra.

Fjöldinn allur af hæfileikaríkum þjálfurum og leikmönnum mættu á námskeiðið okkar í fyrra og er skipulag námskeiðsins sumarið 2022 á sömu nótum.

Í fyrra seldist upp á námskeiðið á einungis viku.

Íþróttaakademía Íslands hefur sett af stað risa jólaleik á facebooksíðu sinni 

Takmörkuð sæti eru í boði og eru allar nánari upplýsingar á heimasíðu Íþróttaakademíu Íslands www.iai.is, á facebooksíðu Íþróttaakademíunnar eða í gegnum [email protected].

Verð 44.900 kr.

Fréttir
- Auglýsing -