Föstudaginn 13. september verður opinn fræðslufundur um starf íþróttadómarans í Laugardalshöll. Fyrirlesarar eru ekki minni menn en NBA-dómarinn Joey Crawford og Zsolt Hartyani, ungverskur eftirlitsmaður sem kemur beint frá EuroBasket í Slóveníu.
Joey er að hefja sitt 36. tímabil í NBA en hann er einn umtalaðasti og reyndasti dómarinn í NBA-deildinni. Hann hefur dæmt 2500 leiki í deildinni, 300 í úrslitakeppni og 50 í lokaúrslitum, síðast leiki í úrslitaeinvígi Miami og San Antonio í vor.
Zsolt Hartyani er frá Ungverjalandi. Hann hefur dæmt yfir 2000 leiki, FIBA dómari í 10 ár og eftirlitsmaður í 13 ár eftir það og er enn að og mun koma beint af EuroBasket í Slóveníu. Situr í evrópsku tækninefndinni og hefur samið sumar breytingar af þeim leikreglum sem gilda í dag.
Dagskrá:
· Lífið í NBA
· Bakvið tjöldin á Eurobasket 2013
· Gagnvirk þjálfun dómara
· Samskipti dómara og þjálfara/leikmanna
· Pallborðsumræður
Dags:
Föstudaginn 13. september frá 13 til 16:30 í sal 1 í Laugardalshöll
Þetta er eitthvað sem enginn íþróttadómari eða íþróttaáhugamaður má láta framhjá
sér fara.
Verð 3.900 kr. og skráning fer fram á [email protected]. Skráningafrestur er til 10. september eða á meðan sætaframboð leyfir.
www.kki.is
Mynd/ Joey Crawford