HomeFréttirMunum aldrei sem land eða þjóð verða litlir

Munum aldrei sem land eða þjóð verða litlir

Íslenska karlalandsliðið sýndi mátt sinn og megin í 113–101 sigri á Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM 2027 og fór þar með upp fyrir Bosníu í 5. sæti J-riðils.

Jón Axel Guðmundsson lék flestar mínútur allra í íslenska liðinu í kvöld, tæpar 32 mínútur, skoraði 18 stig, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar, auk þess að draga vagninn í varnarleiknum í fyrri hálfleik þegar Bosníumenn reyndu að snúa leiknum sér í vil.

Rætt var við Jón Axel að leik loknum í Laugardalshöll.

Viðtalið við Jón Axel má horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.

Fréttir
- Auglýsing -