spot_img
HomeFréttirÖllum sumarverkefnum yngri landsliða aflýst

Öllum sumarverkefnum yngri landsliða aflýst

Öllum verkefnum yngri landsliða hefur verið aflýst. Er þar um að ræða bæði Evrópu og Norðurlandamót sem fara áttu fram í sumar.

Tilkynningu KKÍ er hægt að lesa í heild hér fyrir neðan.

Tilkynning frá FIBA: Engin sumarmót yngri landsliða 2020

Stjórn FIBA Europe hélt stjórnarfund í gær og tók fyrir málefni er varða stöðuna í heiminum í dag og með framhaldið í sumar í mótahaldi sínu.

Stjórn FIBA Europe tilkynnti nú formlega rétt í þessu að hún hefði ákveðið að engin mót yngri landsliða fari fram í sumar á þeirra vegum. Það þýðir að Evrópukeppnir U16, U18 og U20 liða fara ekki fram árið 2020 í öllum deildum. Alls er um 16 mót að ræða á þeirra vegum víðsvegar um Evrópu.

Mikilvægast er að setja áfram heilsuna í forgang og reyna allt til að stoppa útbreiðslu veirunnar sem nú herjar á heiminn. Staðan er víða slæm og ennþá margt óljóst hvenær körfuknattleiksæfingar geta hafist að nýju og hvað þá mannamót og einnig hver staðan verður þá í Evrópu allri til ferðalaga og dvalar erlendis. Því tók FIBA þessa ákvörðun í gær.

Stjórn og starfsfólk KKÍ mun skoða á næstu misserum áfram hvort eitthvað annað afreksstarf en keppni á mótum erlendis fari fram þegar það verður leyfilegt og gerlegt síðar í sumar.

Þá ákváðu norðurlöndin saman að ekkert yrði af NM-móti landanna í Finnlandi hjá U16 og U18 liðunum og nú þegar hefur verið hætt við verkefni U15 liðanna í Danmörku í júní en tilkynning barst til KKÍ þess efnis í gær.

Fréttir
- Auglýsing -