HomeFréttirÖllum körfuknattleik frestað um helgina vegna veðurs

Öllum körfuknattleik frestað um helgina vegna veðurs

 

Körfuknattleikssambandið hefur frestað öllum fjölliðamótum sem eiga að vera komandi helgi, sem og öllum deildarleikjum sem áttu að vera á morgun laugardag. Þetta gera þeir eftir að hafa ráðfært sig við Veðurstofu Íslands.

 

 

Fréttatilkynning:

Mótanefnd KKÍ hefur tekið þá ákvörðun eftir að hafa ráðfært sig við Veðurstofuna að fresta öllum fjölliðamótum sem eiga að vera helgina 10.-11. febrúar. Veðurspáin er þannig að ekkert ferðaveður verður laugardaginn 10. febrúar og fyrri parts sunnudagsins 11. febrúar. Einnig er búið að fresta öllum deildarleikjum laugardagsins vegna sömu ástæðna.

 

Fréttir
- Auglýsing -