spot_img
HomeFréttirÖlli sýnd í Háskólabíói um helgina

Ölli sýnd í Háskólabíói um helgina

Heimildamynd Garðars Arnar Arnarssonar um körfuboltamanninn Örlyg Aron Sturluson verður tekin til sýninga í Háskólabíói í dag. Myndin verður sýnd föstudag til mánudags klukkan 17:30 og mun 10% af hverjum seldum miða renna í Minningarsjóð Ölla sem hefur það að markmiði að styrkja börn sem minna mega sín á Íslandi til íþróttaiðkunar.
 
UM ÖLLA OG MYNDINA
Heimildamyndin Ölli eftir Garðar Örn Arnarson er mynd um líf og leik Örlygs Arons Sturlusonar sem var ekki lengi að stimpla sinn inn sem mesta efni í sögu íslensks körfubolta eftir að hann hóf feril sinn með meistaraflokki Njarðvíkur árið 1997 þá einungis 16 ára gamall. Hann varð undir eins lykilmaður í liðinu sem varð Íslandsmeistari árið 1998.
 
Eftir frábært tímabil hélt Ölli út til North Carolina í Bandaríkjunum til þess að stunda nám og spila körfubolta með Charlotte Christian Knights undir stjórn Hall of Fame NBA leikmannsins Bobby Jones sem varð meistari með Philadelpia 76’ers árið 1983. Bobby var einnig fyrsti leikmaðurinn í sögunni til þess að fá nafnbótina sjötti maður ársins en hann afrekaði að spila fjóra All Star leiki og var valinn í varnarlið NBA-deildarinnar tíu ár í röð.
 
Eftir árangursríka dvöl í Bandaríkjunum snéri Ölli heim og hóf aftur að leika með Njarðvík þá orðinn 18 ára gamall. Hann spilaði þrjá A-landsleiki og nokkra unglingalandsleiki fyrir tímabilið og var orðinn einn af albestu leikmönnum meistaradeildarinnar tímabilið 1999-2000 þegar hann lést af slysförum 16. janúar árið 2000, daginn eftir að hann spilaði Stjörnuleik Körfuknattleikssambands Íslands.
 
Myndin rekur feril Ölla og gefur áhorfandanum tækifæri á að kynnast þessum einstaka dreng í gegnum vini hans, þjálfara, mótspilara og ættingja. Ölli var glæsilegur og hæfileikaríkur drengur sem átti framtíðina fyrir sér þegar hann kvaddi okkur skyndilega. 
 
MINNINGARSJÓÐUR ÖLLA
 
Í tilefni af gerð myndarinnar hefur fjölskylda Ölla ákveðið að stofna minningarsjóð í hans nafni. Sjóðurinn sem hefur starfsemi í haust hefur það markmið að styrkja börn sem minna mega sín á Íslandi til íþróttaiðkunar. Stjórn sjóðsins skipa þau Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður, Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte og Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsufræðingur. Verndari sjóðsins er Þorgrímur Þráinsson. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta lagt inn á reikning sjóðsins 0322-26-021050 sem er í fjárvörslu Deloitte ehf., kt. 521098-2449.
 
FREKARI UPPLÝSINGAR
Garðar Örn Arnarson, leikstjóri, sími 848 5375
María Rut Reynisdóttir, Minningarsjóður Ölla, sími 897 5357
 
  
Fréttir
- Auglýsing -